
Saga Mjólkurbikarsins
Mjólkurbikarinn er nafnið á bikarkeppni KSÍ í karla- og kvennaflokki og hefur það beina tengingu við aðalstyrktaraðila keppninnar sem er Mjólkursamsalan.
Bikarkeppni KSÍ á sér langa sögu, í karlaflokki hefur verið keppt um bikarinn á hverju ári síðan 1960 og í kvennaflokki síðan 1981. Á fyrstu árum keppninnar var leikið til úrslita á gamla Melavellinum, þar sem Þjóðarbókhlaðan stendur nú, en frá 1973 hafa úrslitaleikir bikarkeppninnar verið á Laugardalsvelli.
Mjólkurbikarinn er útsláttarkeppni þar sem sigurvegari hverrar viðureignar fer áfram í næstu umferð en liðið sem tapar er úr leik. Keppnin hefst með undankeppni liða úr neðri deildunum áður en lið úr efstu deild bætast við og er dregið um hvaða lið mætast í hverri umferð þar til tvö standa eftir og leika til úrslita.
Fyrsta aldarfjórðunginn kallaðist keppnin einfaldlega Bikarkeppni KSÍ en svo var það árið 1986 að KSÍ leitaði til Mjólkurdagsnefndar um að gerast styrktaraðili og var það gert að erlendri fyrirmynd. Enska knattspyrnusambandið hafði samið við Milk Marketing Board árið 1981 um að gerast fyrsti styrktaraðili Football League Cup sem upp frá því kallaðist Milk Cup til ársins 1986.

Keppt um Mjólkurbikarinn í sumar?
Á baksíðu Morgunblaðsins þann 31. janúar 1986 birtist eftirfarandi frétt undir fyrirsögninni: „Verður keppt um Mjólkurbikar í sumar?“
Mjólkurdagsnefnd er með í athugun boð Knattspyrnusambands Íslands um að tengja nafn bikarkeppni KSÍ við mjólk – á svipaðan hátt og gert er í Englandi þar sem keppt er um Mjólkurbikarinn. Myndi keppnin þá væntanlega heita Bikarkeppni KSÍ – Mjólkurbikarinn.
Óskar H. Gunnarsson formaður mjólkurdagsnefndar sagði að nefndin hefði fjallað um þetta boð KSÍ og nefndarmenn væru jákvæðir enda gæti þarna verið um góða auglýsingu að ræða. Óskar sagði óvíst hvernig að þessu samstarfi yrði staðið ef af yrði en rætt væri um að keyptur yrði nýr og veglegur bikar fyrir keppnina.*
Samstarfið varð að veruleika og var leikið til úrslita um nýja Mjólkurbikarinn í fyrsta sinn þann 31. ágúst 1986 þegar ÍA sigraði Fram 2-1. Mjólkurbikarinn festi sig fljótt í sessi sem nafn á bikarkeppni KSÍ og var hún haldin undir þessu nafni fram til ársins 1996.
*Heimild: Morgunblaðið, 31. janúar 1986

Mjólkurbikarinn 2018
Fyrir keppnistímabilið 2018 samdi KSÍ við Mjólkursamsöluna um að gerast aðalstyrktaraðili bikarkeppninnar og nær sá samningur til loka keppnistímabilsins 2027. Með þessu var verið að endurvekja stemningu og boðskap með sterkar rætur og láta nafnið Mjólkurbikarinn ganga í endurnýjun lífdaga enda hugleikið flestum unnendum íslenskrar knattspyrnu.
Ríkjandi Mjólkurbikarmeistari karla er Vestri á Ísafirði sem sigraði Val 1-0 í úrslitaleik þann 22. ágúst 2025. KR-ingar hafa oftast allra liða orðið bikarmeistarar karla, alls 14 sinnum og þar af sjö sinnum á fyrstu átta árum keppninnar. Þar á eftir koma Valur með 11 titla, ÍA níu, Fram átta og ÍBV og Víkingur með fimm hvort félag. Keflavík hefur sigrað bikarkeppnina fjórum sinnum, FH og Fylkir tvisvar hvort félag og ÍBA, KA, Breiðablik, Stjarnan og Vestri einu sinn hvert.
Breiðablik er Mjólkurbikarmeistari kvenna eftir 3-2 sigur á FH í framlengdum leik 16. ágúst 2025. Valur og Breiðablik eru sigursælustu bikarlið kvenna og hafa Valskonur unnið bikarinn alls 15 sinnum og Breiðablik 14 sinnum. Næst koma ÍA og KR með fjóra bikarmeistaratitla hvort félag, Stjarnan hefur unnið þrisvar, ÍBV tvisvar og Víkingur Reykjavík og Selfoss einu sinni.
